Framleiðsla erlendis fyrir íslensk fyrirtæki
Við finnum verksmiðjuna.
Nordic Dynamic er íslenskt fyrirtæki sem lætur framleiða vörur erlendis, fyrir eigið vörumerki og fyrir önnur fyrirtæki. Við þekkjum framleiðendurna og förum á staðinn þegar verkefnið kallar á það.
Við höfum farið á staðinn
Myndir af gólfinu
Myndirnar af gólfinu tókum við sjálfar, í verksmiðjum og á Canton Fair.
Vöruflokkar
Það sem við látum framleiða
Hver flokkur á sína síðu með dæmum og því sem gott er að vita áður en pantað er.
Fatnaður Fatalínur og textíll
Eigin fatalína eða textílvara, frá sniði og sýnishorni að fullri framleiðslu.
Prjón Prjónavörur
Húfur, treflar, peysur og vettlingar með merki eða í eigin hönnun.
Vinnufatnaður Vinnufatnaður
Einkennisfatnaður og vinnufatnaður, líka fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Íþróttir Íþróttafélög
Keppnisbúningar, félagsgallar, æfingafatnaður og stuðningsmannavörur með merki félagsins.
Sérmerkt Sérmerktar vörur
Fatnaður, handklæði, brúsar, töskur og fleira með merki fyrirtækisins, í magni.
Gjafir Fyrirtækjagjafir
Jólagjafir starfsmanna og gjafir til viðskiptavina, í öskjum með merki fyrirtækisins.
Umbúðir Umbúðir og pakkningar
Gjafaöskjur, sendingarkassar, pokar og öskjur utan um vöruna, með þínu merki.
Húsgögn Húsgögn
Húsgögn fyrir hótel, veitingastaði og skrifstofur, eftir þínum óskum.
Hótel Hótelvörur
Inniskór, handklæði, baðsloppar og rúmföt fyrir hótel og heilsulindir.
Sjúkrahús Sjúkrahúss- og lækningavörur
Rekstrarvörur fyrir heilbrigðisstofnanir, eingöngu frá vottuðum framleiðendum.
Ef varan þín er ekki á listanum, spurðu samt.
Við látum framleiða fleira en það sem er hér. Segðu okkur hvað þig vantar og í hvaða magni.
Senda fyrirspurnOkkar eigin framleiðsla
50.000+
Snoozle er okkar eigin vara, hönnuð á Íslandi og framleidd í Kína. Yfir 50.000 eintök hafa selst á Íslandi og erlendis síðan 2013 og varan fæst í öllum apótekakeðjum landsins.
Ferlið
Svona gengur þetta fyrir sig
Þú veist alltaf hvar pöntunin stendur og ekkert fer í framleiðslu án þíns samþykkis.
Fyrirspurn
Þú lýsir vörunni, magninu og hvenær hún þarf að vera komin.
Framleiðendur og verð
Við finnum framleiðendur sem passa og berum saman verð og skilmála.
Sýnishorn
Sýnishorn er sent til Íslands. Ekkert fer í framleiðslu fyrr en þú samþykkir.
Framleiðsla og eftirlit
Við fylgjum framleiðslunni eftir og látum skoða vöruna áður en hún fer af stað.
Heim til Íslands
Við skipuleggjum flutning og tollafgreiðslu heim.
Um okkur
Við þekkjum verksmiðjurnar.
Það er munur á að panta af netinu og að þekkja framleiðandann. Við höfum heimsótt verksmiðjurnar sem við vinnum með og förum aftur þegar stærð eða eðli verkefnis kallar á það.
Fyrirspurn
Hvað vantar þig?
Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.