Fyrirtækjagjafir
Fyrirtækjagjafir og jólagjafir starfsmanna
Gjöf sem er hönnuð fyrir fyrirtækið þitt og kemur í öskju með merkinu. Við látum framleiða bæði gjöfina og umbúðirnar.
Það sem við getum útvegað
- Gjafaöskjur með merki, tilbúnar til afhendingar
- Teppi, handklæði og baðsloppar
- Bollar, brúsar og glös
- Kerti
- Töskur og ferðavörur
- Kort og umbúðir með kveðju
- Fyrir jól
- Panta helst fyrir lok sumars
- Umbúðir
- Askja, pappír og kort með merki
- Afhending
- Til fyrirtækisins, tilbúið til dreifingar
Tímasetningin skiptir mestu
Framleiðsla og flutningur frá Asíu taka nokkrar vikur, og margar verksmiðjur í Kína loka í kringum kínverska nýárið í janúar eða febrúar. Fyrir jólagjafir er best að velja gjöfina snemma sumars og samþykkja sýnishorn síðsumars.
Algengar spurningar
Hvenær þarf að panta fyrir jól?
Helst fyrir lok sumars. Þá er tími fyrir sýnishorn, framleiðslu og sjóflutning án þess að borga fyrir flugfrakt.
Getið þið pakkað hverri gjöf sérstaklega?
Já. Gjöfin getur komið í öskju með merki og korti, tilbúin til að afhenda starfsfólki eða viðskiptavinum.
Eru jólagjafir til starfsmanna skattskyldar?
Um gjafir til starfsmanna gilda reglur Skattsins. Skoðaðu leiðbeiningar á skatturinn.is eða ræddu við bókarann þinn áður en gjöfin er valin.
Fróðleikur
-
Hvernig læt ég framleiða vöru í Kína?
Skrefin frá fyrstu lýsingu þar til varan er komin til Íslands.
Lesa -
Hvað er lágmarksmagn (MOQ)?
Hvað ræður lágmarksmagni og hvernig má semja um minna.
Lesa -
Hvað kostar að flytja vöru frá Kína til Íslands?
Sjór eða flug, gámar, afhendingarskilmálar og gjöld við innflutning.
Lesa -
Hvaða reglur gilda um innfluttar vörur?
Ábyrgð innflytjanda, CE-merking, merkingar á fatnaði og efni í vörum.
Lesa
Fyrirspurn
Hvað vantar þig?
Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.