Ferlið
Svona gengur þetta fyrir sig
Frá fyrstu fyrirspurn þar til varan er komin til Íslands. Ekkert fer í framleiðslu fyrr en þú hefur samþykkt sýnishorn.
Fyrirspurn
Þú lýsir vörunni, magninu og hvenær hún þarf að vera komin.
Framleiðendur og verð
Við finnum framleiðendur sem passa og berum saman verð og skilmála.
Sýnishorn
Sýnishorn er sent til Íslands. Ekkert fer í framleiðslu fyrr en þú samþykkir.
Framleiðsla og eftirlit
Við fylgjum framleiðslunni eftir og látum skoða vöruna áður en hún fer af stað.
Heim til Íslands
Við skipuleggjum flutning og tollafgreiðslu heim.
Algengar spurningar
Hvað kostar þjónustan?
Það fer eftir verkefninu. Í tilboðinu kemur fram heildarverð heim til Íslands og hvernig það skiptist.
Hvað er lágmarksmagn?
Lágmarksmagn er minnsta pöntun sem framleiðandi tekur að sér. Það er mismunandi eftir vöru og kemur fram í tilboðinu.
Hver er innflytjandi vörunnar?
Þitt fyrirtæki. Varan er flutt inn á þínu nafni og þú berð ábyrgð á henni sem innflytjandi. Við finnum framleiðendur sem uppfylla kröfurnar, útvegum gögn frá þeim og skipuleggjum flutning og tollafgreiðslu fyrir þína hönd.
Hver ber ábyrgð ef varan er gölluð?
Við förum yfir gæðakröfur áður en framleiðsla hefst og látum skoða vöruna áður en hún fer af stað. Komi galli í ljós vinnum við úr því með framleiðandanum fyrir þína hönd.
Hvað þýðir kínverska nýárið fyrir pantanir?
Margar verksmiðjur í Kína loka í tvær til fjórar vikur í kringum kínverska nýárið í janúar eða febrúar. Pantanir sem eiga að berast á vorin þurfa að fara af stað fyrir þann tíma.
Hvað þýða FOB og DDP?
Það eru afhendingarskilmálar. FOB þýðir að verðið miðast við vöruna komna um borð í skip í útflutningshöfn. DDP þýðir að varan er komin til þín, tollafgreidd og með öllum gjöldum greiddum.
Fyrirspurn
Hvað vantar þig?
Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.