Fara beint í efni

Umbúðir

Prentaðar umbúðir og gjafaöskjur

Við látum framleiða öskjur, kassa og poka utan um þína vöru, með þínu merki og í þínum litum. Það borgar sig þegar upplagið er orðið nokkur þúsund stykki.

Tölvugerð mynd af sendingarkassa, öskju, poka og hólki með merki skáldaðs vörumerkis
Dæmi Kassar, öskjur og pokar

Það sem við getum útvegað

  • Gjafaöskjur með segullás eða loki
  • Sendingarkassar fyrir netverslanir, prentaðir að innan og utan
  • Pappírspokar með merki
  • Öskjur fyrir snyrtivörur, matvöru og smávöru
  • Kort, miðar og innpökkunarpappír
  • Umbúðir fyrir matvæli frá vottuðum framleiðendum
Umbúðir
Efni
Pappi, bylgjupappi, kraftpappír
Prentun
Litprentun, álþrykk, upphleyping
Matvæli
Aðeins vottaðir framleiðendur
64°N Ísland23°N Guangdong

Dæmi

Dæmi um umbúðir

Myndirnar eru tölvugerð dæmi um umbúðir sem hægt er að láta framleiða. Fyrirtækin á þeim eru tilbúin.

Tölvugerð mynd af gjafaöskju fyrir skáldað fyrirtæki
Dæmi Gjafaaskja fyrir fyrirtæki
Tölvugerð mynd af súkkulaðiumbúðum fyrir skáldaðan framleiðanda
Dæmi Umbúðir fyrir súkkulaði
Tölvugerð mynd af poka, kaffipoka, öskju, sendingarkassa og hólki
Dæmi Pokar, öskjur og sendingarkassar

Hvenær borgar sig að framleiða erlendis?

Fyrir lítið upplag eru íslenskar prentsmiðjur oft betri kostur. Framleiðsla erlendis borgar sig þegar upplagið er stórt eða askjan sjálf er sérsmíðuð, til dæmis með segullás, innleggi eða sérstöku formi.

Algengar spurningar

Hvert er lágmarksupplagið?

Það fer eftir gerð umbúða. Lágmarksupplag kemur fram í tilboðinu.

Getið þið hannað umbúðirnar?

Við vinnum út frá hönnun frá þér eða þínum hönnuði og sjáum til þess að hún skili sér rétt í framleiðslu.

Má nota umbúðirnar fyrir matvæli?

Já, ef framleiðandinn er vottaður fyrir umbúðir sem snerta matvæli. Fyrir matvælaumbúðir veljum við aðeins slíka framleiðendur.

Fyrirspurn

Hvað vantar þig?

Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.

Myndir, teikningar eða PDF, samtals allt að 4 MB.
Á að sérmerkja vöruna?