Fara beint í efni

Sérmerktar vörur

Sérmerktar vörur í magni

Við látum framleiða vörur með merki fyrirtækisins frá grunni, með þínu efni, lit og sniði. Það borgar sig þegar magnið er orðið nokkur hundruð stykki.

Tölvugerð mynd af derhúfu, hettupeysu og bolum merktum skálduðu fyrirtæki
Dæmi Merktur fatnaður

Það sem við getum útvegað

  • Bolir, peysur og derhúfur með merki
  • Handklæði og baðsloppar með merki eða nafni
  • Brúsar, bollar og glös
  • Töskur, bakpokar og fjölnota taupokar
  • Sokkar og buff
  • Verðlaunapeningar og fánar fyrir mót og hlaup
  • Lyklakippur og smávörur
Sérmerktar vörur
Sérmerking
Ofinn miði, prent, útsaumur, upphleyping
Sýnishorn
Alltaf samþykkt áður en framleiðsla hefst
Umbúðir
Geta fylgt, líka með merki
64°N Ísland23°N Guangdong

Hvenær borgar sig að framleiða erlendis?

Þegar þig vantar nokkra tugi stykkja með stuttum fyrirvara er prentun hér heima yfirleitt betri kostur. Framleiðsla erlendis borgar sig þegar magnið er meira, varan á að vera sérhönnuð eða merkið á að vera hluti af vörunni sjálfri, til dæmis ofið eða saumað í.

Framleiðsla og flutningur taka nokkrar vikur, svo best er að hafa samband með góðum fyrirvara.

Algengar spurningar

Hvað er lágmarksmagnið?

Það fer eftir vörunni og framleiðandanum. Lágmarksmagn kemur fram í tilboðinu, og oft er hægt að blanda litum eða stærðum innan sömu pöntunar.

Get ég fengið sýnishorn áður en ég panta?

Já. Sýnishorn er sent til Íslands og ekkert fer í framleiðslu fyrr en þú hefur samþykkt það.

Hvað tekur langan tíma að fá vörurnar?

Það fer eftir vöru og magni. Í tilboðinu kemur fram áætlaður tími fyrir sýnishorn, framleiðslu og flutning heim.

Fyrirspurn

Hvað vantar þig?

Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.

Myndir, teikningar eða PDF, samtals allt að 4 MB.
Á að sérmerkja vöruna?