Um okkur
Íslenskt fyrirtæki með reynslu af framleiðslu erlendis
Nordic Dynamic ehf. á og rekur Snoozle, vöru sem er hönnuð á Íslandi og framleidd í Kína. Nú notum við sömu reynslu og sömu tengsl fyrir önnur íslensk fyrirtæki.
Snoozle
Snoozle er hönnuð á Íslandi og hefur verið framleidd í Kína í meira en áratug. Yfir 50.000 eintök hafa selst á Íslandi og erlendis síðan 2013 og varan fæst í öllum apótekakeðjum landsins.
Allt sem við bjóðum öðrum höfum við gert sjálfar: fundið framleiðanda, samþykkt sýnishorn, fylgt framleiðslunni eftir og komið vörunni heim.
Við þekkjum verksmiðjurnar
Það er munur á að panta af netinu og að þekkja framleiðandann. Við höfum heimsótt verksmiðjurnar sem við vinnum með og förum aftur þegar stærð eða eðli verkefnis kallar á það.
Hverjar við erum
Á bak við Nordic Dynamic standa Lilja Þorsteinsdóttir og Eva Dögg Long Bjarnadóttir.
Fyrirspurn
Hvað vantar þig?
Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.