Fróðleikur
Hvernig læt ég framleiða vöru í Kína?
Þú lýsir vörunni, finnur framleiðanda sem gerir svipaðar vörur, færð verð og lágmarksmagn, samþykkir sýnishorn og lætur skoða vöruna áður en hún fer af stað. Með sjóflutningi tekur ferlið oft þrjá til fimm mánuði frá fyrstu fyrirspurn þar til varan er komin til Íslands, eftir vöru, magni og árstíma.
1. Lýstu vörunni nákvæmlega
Því nákvæmari sem lýsingin er, því nákvæmari verða verðin. Gott er að tilgreina efni, mál, liti og magn, hvernig merkið á að vera og hvernig á að pakka vörunni. Myndir af svipuðum vörum hjálpa mikið.
2. Finndu réttan framleiðanda
Mikill munur er á verksmiðju sem framleiðir vöruna sjálf og heildsala sem kaupir af öðrum. Verksmiðja gefur yfirleitt betra verð og meiri stjórn á gæðum. Biddu um myndir af framleiðslunni, dæmi um sambærilegar vörur og vottanir ef varan krefst þeirra.
3. Verð og lágmarksmagn
Verð er oftast gefið upp á hverja einingu miðað við ákveðið magn. Lágmarksmagn er minnsta pöntun sem framleiðandinn tekur að sér og fer eftir vörunni. Athugaðu hvort verðið er miðað við vöruna komna í skip í Kína eða heim til þín, því það munar miklu.
4. Sýnishorn
Slepptu aldrei sýnishorni. Það er eina leiðin til að sjá efni, frágang og liti áður en þú pantar hundruð eða þúsundir eintaka. Algengt er að sýnishorn taki tvær til fjórar vikur og að greitt sé fyrir það og sendinguna.
5. Greiðslur
Algengt er að greiða hluta við pöntun og afganginn áður en varan fer frá verksmiðjunni. Lokagreiðsla ætti ekki að fara fyrr en varan hefur verið skoðuð.
6. Gæðaeftirlit
Áður en varan fer af stað ætti hún að vera skoðuð, annaðhvort af fulltrúa kaupanda eða óháðu skoðunarfyrirtæki. Þá er hún borin saman við samþykkta sýnishornið: efni, mál, litir, merkingar og umbúðir.
7. Flutningur og tollafgreiðsla
Sjóflutningur er ódýrastur fyrir rúmmikla vöru en tekur lengri tíma. Flug hentar fyrir lítið magn eða þegar liggur á. Fyrirtækið sem flytur vöruna inn ber ábyrgð á henni sem innflytjandi. Á flestar innfluttar vörur leggst 24% virðisaukaskattur, en tollar eru engir á iðnaðarvörum eins og fatnaði, húsgögnum og umbúðum.
8. Kínverska nýárið
Margar verksmiðjur í Kína loka í tvær til fjórar vikur í kringum kínverska nýárið, sem er í janúar eða febrúar ár hvert og 6. febrúar árið 2027. Pantanir sem eiga að berast á vorin þurfa að fara af stað fyrir þann tíma.
-
Hvað er lágmarksmagn (MOQ)?
Hvað ræður lágmarksmagni og hvernig má semja um minna.
Lesa -
Hvað kostar að flytja vöru frá Kína til Íslands?
Sjór eða flug, gámar, afhendingarskilmálar og gjöld við innflutning.
Lesa -
Hvaða reglur gilda um innfluttar vörur?
Ábyrgð innflytjanda, CE-merking, merkingar á fatnaði og efni í vörum.
Lesa
Fyrirspurn
Hvað vantar þig?
Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.