Fróðleikur
Hvað er lágmarksmagn (MOQ)?
Lágmarksmagn, á ensku MOQ eða minimum order quantity, er minnsta pöntun sem framleiðandi tekur að sér. Það fer eftir vörunni, efninu og því hve mikið þarf að sérsníða, og er oft miðað við hvern lit eða hverja útgáfu.
Af hverju setja verksmiðjur lágmarksmagn?
Það kostar tíma og efni að stilla vélar, lita garn eða útbúa mót fyrir nýja vöru. Verksmiðjan þarf ákveðið magn til að sá kostnaður dreifist og verðið á hverja einingu verði sanngjarnt. Efni er líka oft keypt í heilum rúllum eða lotum.
Hvað ræður lágmarksmagninu?
Mestu skiptir hve mikið þarf að sérsníða. Vara úr efni sem verksmiðjan á til er yfirleitt hægt að fá í minna magni en vara úr sérlituðu efni eða með sérsmíðuðu móti.
- Hvort efnið eða garnið er litað sérstaklega
- Hvort þarf nýtt mót eða snið
- Fjöldi lita og stærða
- Hvernig merkið er sett á, til dæmis ofið, útsaumað eða prentað
- Hvort umbúðir eru sérprentaðar
Lágmarksmagn á hvern lit
Oft gildir lágmarksmagnið um hvern lit fyrir sig. Ef pantaðir eru fimm litir getur heildarpöntunin því orðið mun stærri en lágmarksmagnið gefur til kynna. Stærðum er hins vegar oft hægt að blanda innan sama litar.
Er hægt að semja um minna magn?
Stundum, en þá hækkar verðið á hverja einingu. Aðrar leiðir eru að velja liti og efni sem verksmiðjan á til, fækka litum eða greiða sérstakt uppsetningargjald.
Hvenær borgar sig að framleiða erlendis?
Þegar magnið er lítið er framleiðsla eða prentun á Íslandi oft betri kostur, því hún er fljótari og hvorki flutningur frá útlöndum né tollafgreiðsla bætist við. Framleiðsla erlendis borgar sig þegar magnið er meira eða varan á að vera sérhönnuð.
-
Hvernig læt ég framleiða vöru í Kína?
Skrefin frá fyrstu lýsingu þar til varan er komin til Íslands.
Lesa -
Hvað kostar að flytja vöru frá Kína til Íslands?
Sjór eða flug, gámar, afhendingarskilmálar og gjöld við innflutning.
Lesa -
Hvaða reglur gilda um innfluttar vörur?
Ábyrgð innflytjanda, CE-merking, merkingar á fatnaði og efni í vörum.
Lesa
Fyrirspurn
Hvað vantar þig?
Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.